Hreggnasi Angling Club Iceland
Skuggi – Hvítá
← Veiðisvæði

Skuggi – Hvítá

Ísland · veiði · fluguveiði · apríl til október

Skuggi – Hvítá

Veiðisvæðið kennt við "Skugga” afmarkast frá gömlu Hvítarbrúnni að og með ármótum Grímsár og Hvítár og frá þeim ármótum að Hvítárvallakverk í Grímsá.

Svæðið er nokkuð víðfemt og er það enginn eftirbátur annarra þekktra veiðisvæða í Hvítá nema síður sé. Um svæðið gengur lax og sjóbirtingur, ekki aðeins á leið sinni í Grímsá, heldur einnig lax úr öðrum stofnum í ofar á vatnasvæðinu.

Við Skugga eru tvö veiðihús og er veiðisvæðið mun lengra en önnur hefðbundin vatnamótasvæði Hvítár. Veitt á fjórar dagsstangir og verður einvörðungu leyft að veiða með fluguveiðitækjum.

KYNNTU ÞÉR ÁNA

Veiðistaðakort

Opna stærra kort ↗

Skipuleggjum veiðiferðina

Hafðu samband ↗